Chie Mihara
Chie Mihara hefur einstakt lag á að gera skó sem maður tekur eftir — en langar líka raunverulega að ganga í. Hún leikur sér með liti, áferð, fallegt leður og óvenjuleg form, en þægindin eru alltaf hluti af hönnuninni.
Það er líka það sem okkur finnst svo skemmtilegt við Chie Mihara. Svartur skór er sjaldnast bara svartur skór. Hællinn fær óvænt form, leðrið aðra áferð eða litur kemur inn þar sem maður átti ekki von á honum. Smáatriðin gera mikið, án þess að skórnir verði erfiðir í notkun.
Það skemmtilega við Chie Mihara er að skórnir kalla á að maður prófi sig áfram. Blandaðu litum sem þú hefðir kannski ekki sett saman áður, láttu óvænt form mæta mynstri eða notaðu skóna á allt annan hátt en þú hafðir fyrst hugsað þér. Það eru engar reglur hér — bara fullt af möguleikum.
Við erum sérstaklega hrifin af skóm sem kveikja hugmyndir, gefa manni smá hugrekki og bjóða upp á að gera eitthvað aðeins öðruvísi. Chie Mihara gerir það aftur og aftur.
Það segir kannski sitt að margar sem eignast eitt par af Chie Mihara koma aftur eftir öðru. Skórnir hafa einfaldlega þann eiginleika að opna fyrir fleiri hugmyndir.
Í Chie Mihara línunni hjá Kron finnur þú hælaskó, flata skó, stígvél og sandala sem eru gerðir til að vera notaðir, blandaðir og gerðir að þínum.
